Síða á stofnana- og sérvefjum
Síða er fyrir allt efni á vefnum, annað en fréttir, viðburði og vefform.
Þegar ný síða er stofnuð birtist einn reitur og tvær valmyndir efst á síðunni:
- Titill: Hér kemur fyrirsögn síðunnar
- Tungumál: Hér er valið rétt tungumál síðunnar, þ.e. hvort síðan er á íslensku eða ensku.
- Sjá leiðbeiningar um tungumálanotkun á vefjum HÍ.
- Sidebar: Val um hvort það á að vera hliðarslá á síðunni – og hvort hún á að vera hægra eða vinstra megin.
Síðan sjálf skiptist svo í þrjá hluta. Fjóra ef þú vilt hafa hliðarslá á síðunni. Flakkað er á milli hlutanna með flipunum í edit-hluta síðunnar:
Í reitinn Preview text er nauðsynlegt að setja inngangstexta. Hann á ekki að vera lengri en ein til tvær setningar. Hann á að lýsa umfjöllunarefni síðunnar í örstuttu máli.
Í hlutanum Preview image þarf að vera mynd. Gott er að hún tengist efni síðunnar, en það er ekki nauðsynlegt.
Sjá nánar: Leiðbeiningar um myndir og myndanotkun.
Efnið úr preview-hlutanum birtist ekki á síðunni sjálfri. En það birtist:
- Í leitarniðurstöðum
- Í fréttayfirliti
- Í efniseiningunni Page reference
Hausinn er notaður ef þú vilt hafa stóra mynd efst á síðunni. Það er ekki nauðsynlegt að hafa efni í hausnum.
Hér eru tvær einingar í boði:
- Mynd
- Slæðusýning (Slideshow)
Hingað fer allt efni á síðuna. Efniseiningar í boði eru:
- Mynd
- Margmiðlunarefni (Media)
- Myndasafn (Gallery)
- Efni úr bakhluta vefsins (Block reference)
- Tengill í aðra síðu (Page reference)
- Mynd með textaboxi (Image text)
- Fókusbox
- Harmónikkulisti (Accordion)
- Lítil textabox (Infobox)
- Tenglasafn (Links collection)
- Flýtileiðir (Shortcuts)
- Umsagnir nemenda (Student comments)
- Starfsmannalisti
- Texti
- Efni í tveimur dálkum (Two columns)
- Myndband með textaboxi (Video text)
Hliðarslá getur verið vinstra eða hægra megin á síðunni. En það er ekki nauðsynlegt. Hér eru eftirfarandi einingar í boði: