Til að breyta síðu þarftu að vera í bakhlutanum (Edit-hlutanum) á henni. Það eru nokkrar leiðir til að komast inn í bakhlutann.

Stysta leiðin er sú að vera á síðunni sem þú ætlar að breyta og smella á blýantstáknið efst í vinstra horni. (Það heitir ýmist Current page eða Local tasks).

Það er líka hægt að fara með músina yfir sama tákn og smella á tengilinn Edit í valmyndinni sem birtist.

Blýantstáknið í Drupal, merkt með rauðum ferhyrningi
Blýantstáknið efst í vinstra horni vafragluggans.

Leit í efnisyfirliti

Það er líka hægt að smella á Content í vinnustikunni. (Blaðatáknið)

  1. Þá geturðu notað leitarvélina og/eða síuna til að finna síðuna sem þú ætlar að breyta.
  2. Smelltu á Edit-hnappinn í sömu línu og viðkomandi síða:
Efnisyfirlit í bakhlutanum í Drupal
Efnisyfirlit, leit og síunarmöguleikar í Drupal. Edit-hnappurinn er lengst til hægri.

Hætta við breytingar

Ef þú hefur vistað síðuna en vilt hætta við breytingarnar geturðu smellt á tengilinn Útgáfur (eða Revisions).

Hann er efst í bakhluta síðunnar, undir fyrirsögninni:

Útgáfutengillinn í Drupal, merktur með rauðum ferhyrningi
Tengillinn Útgáfur í Drupal, efst í bakhluta síðunnar, undir fyrirsögninni.

Eftir að smellt er á tengilinn birtist breytingasaga síðunnar.

Á listanum sjást:

  • Dagsetning
  • Notandanafn þess sem breytti síðunni
  • Revert-hnappur.

Ef smellt er á dagsetninguna sést hvernig síðan leit út þann dag.

Til að fá eldri útgáfuna upp aftur smellirðu á Revert-hnappinn, í sömu línu og viðkomandi dagsetning.

Það er líka hægt að smella á píluna hjá hnapinum og velja möguleikann Delete. Þá eyðist viðkomandi útgáfa úr breytingasögu síðunnar.

Eftir að smellt er á hnappinn birtist staðfestingarsíða. Þar þarftu að staðfesta að þú viljir örugglega klára aðgerðina.

Listi yfir breytingasögu á síðu í Drupal. Hnappurinn Revert er merktur með rauðum ferhyrningi.
Dæmi um yfirlit yfir breytingasögu á síðu í Drupal. Revert-hnappurinn er hægra megin í línunni.
Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Share