Gallerý-eininguna má nota til að birta fleiri en eina mynd á sömu síðu. Þá er hægt að fletta í gegnum myndirnar.
Eftir að einingunni hefur verið bætt við getur þú hlaðið mynd upp á vefinn eða sótt mynd sem nú þegar er búið að hlaða upp.
Til að bæta mynd í safnið smellir þú á hnappinn Bæta við margmiðlunarefni.
Til að fjarlægja mynd úr myndasafninu smellirðu á X-hnappinn uppi í hægra horni myndarinnar. (Hún hverfur ekki af vefnum, heldur bara úr þessu safni).
Einnig má breyta röð myndanna með því að draga þær til og frá með músinni. (Drag-n-drop-möguleikinn).
Þegar myndirnar eru komnar á síðuna birtist tala neðst í hægra horninu á fremstu myndinni, sem gefur til kynna hversu margar myndir til viðbótar eru í þessari myndasýningu.
Til að skoða myndirnar er smellt á fremstu myndina.