Viðburður á stofnana- og sérvefjum

Viðburðasíða er notuð til að kynna viðburði framundan. Á mörgum vefjum eru þó fréttir notaðar til að kynna viðburði, þar sem viðburðir eru kannski ekki svo margir eða þeir haldnir reglulega.

Efst á síðunni þarf að fylla út nokkur svæði:

Image
Efsti hluti viðburðarsíðu
  • Titill: Fyrirsögn eða heiti viðburðarins. Fyrisögnin á að vera stutt og hnitmiðuð, ekki lengri en 90 slög.
  • Tungumál: Hér er valið hvort viðburðurinn er á íslensku eða ensku.
    Sjá reglur um tungumálanotkun á vefjum HÍ
  • Category: Hér er valið Viðburður.
  • Sidebar: Hér velurðu hvort þú vilt hafa hliðarslá á síðunni, og þá hvort hún á að vera hægra eða vinstra megin.

Viðburðasíðan sjálf skiptist svo í þrjá hluta. Fjóra ef þú vilt hafa hliðarslá á síðunni. Flakkað er á milli hlutanna með flipunum í edit-hluta síðunnar:

Image
Síðuhlutar

Í reitinn Preview text er nauðsynlegt að setja inngangstexta. Hann á ekki að vera lengri en ein til tvær setningar. Hann á að lýsa viðburðinum í örstuttu máli.

Í hlutanum Preview image þarf að vera mynd. Gott er að hún tengist viðburðinum, en það er ekki nauðsynlegt.

Leiðbeiningar um myndir og myndanotkun.

Í hausnum eru nokkur svæði sem þarf að fylla út.

  • Hausmynd: Til að bæta við hausmynd er smellt á hnappinn Add Paragraph, fyrir ofan dagatalið.
    Sjá leiðbeiningar um myndir og myndanotkun.
  • Dagatölin: Í efra dagatalið er skráður upphafsdagsetning og -tími viðburðarins.
    Í neðra dagatalið kemur lokadagsetning og -tími.
  • Building: (Select a value). Í þessari valmynd velur þú bygginguna þar sem viðburðurinn er haldinn. Ef viðburðurinn er haldinn utan háskólasvæðisins velur þú möguleikann Utan háskólasvæðis.
    Það er hægt að bæta fleiri byggingum við listann. Sjá leiðbeiningar um efnisflokkun.
  • Location detail: Í þennan reit getur þú skrifað nánari staðsetningu, til dæmis í hvaða stofu viðburðurinn er haldinn eða staðsetningu ef hann er haldinn utan háskólasvæðis.
  • Further information: Hingað kemur stuttur texti, ef þess þarf, en ekki lengri en 50-60 slög.
    Dæmi um texta til að hafa í þessum reit er:
    • Aðangur ókeypis
    • Opið öllum
    • Miðaverð: 2000 kr.

Hliðarslá getur verið vinstra eða hægra megin á síðunni. En það er ekki nauðsynlegt. Hér eru eftirfarandi einingar í boði:

Eftir að viðburður hefur verið stofnaður er hægt að birta viðburðayfirlit á forsíðu og á venjulegum síðum.

Viðburðayfirlitið er búið til með einingunni Block reference. Sjá nánari leiðbeinigar.

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.