Til að bæta myndum við síðu er hægt að nota þessar efniseiningar:
- Mynd
- Focus box collection
- Gallery
- Image text
- Info box collection
- Slæðusýning (Slideshow)
- Umsagnir nemenda
Eftir að búið er að bæta efniseiningum við síðuna er hægt að hlaða upp mynd til að birta í þeim eða sækja myndir sem eru nú þegar til á vefnum:
Það ætti alltaf fyrst að athuga hvort mynd er til í myndasafni vefsins áður en henni hlaðið upp á vefinn:
- Bættu viðeigandi efniseiningu við síðuna.
- Smelltu á hnappinn Bæta við margmiðlunarefni (eða Add media).
Þá opnast nýr gluggi. - Finndu myndina í safninu.
Þú getur flett í gegnum myndasafnið eða notað leitarmöguleikann fyrir ofan. - Veldu myndina sem þú vilt birta.
- Smelltu á hnappinn Insert selected.
Mundu að vista síðuna sjálfa þegar myndin er komin á sinn stað.
- Bættu viðeigandi efniseiningu við síðuna.
- Smelltu á hnappinn Bæta við margmiðlunarefni (eða Add media).
Þá opnast nýr gluggi. - Smelltu á hnappinn Select files í gráa rammanum efst. Finndu myndina í tölvunni hjá þér.
Eða:
Dragðu myndina inn í gráa rammann. - Þá þarf að fylla út í tvo reiti:
- Nafn: Nafn myndar eða leitarorð fyrir myndina. Ef nógu lýsandi og góð leitarorð eru notuð kemur það í veg fyrir að myndin þurfi að vera til í fleiri en einu eintaki á vefnum.
- Alternative text: Alt-texti, sem lýsir því hvað er á myndinni. Hann er nauðsynlegur, m.a. fyrir lesvélar blindra og sjónskertra. Hann hjálpar líka leitarvélum að finna myndirnar.
- Smelltu á Vista.
Myndin er þá tilbúin til birtingar - Til að birta myndina velur þú myndina og smellir á hnappinn Insert selected.
Stillingunum í skrefi 4 hér fyrir ofan (Mynd hlaðið upp) má alltaf breyta síðar:
- Veldu Innihald (eða Content) (blaðatáknið í tækjalistanum) → Media → Margmiðlunarsafn (eða Media library).
- Finndu myndina í safninu. Þú getur notað leitina og síunina efst á síðunni.
- Smelltu á blýantstáknið á myndinni.
- Á síðunni sem þá birtist getur þú breytt nafninu, alt-textanum og bætt við upplýsingum um höfund/ljósmyndara myndarinnar.
Á myndinni er líka fókuspunkturinn, litli hvíti krossinn á myndinni. Það er hægt að draga hann hvert sem er á myndinni. Það sem er undir fókuspunktinum birtist, sama hvernig myndin klippist.
Hægt er að smella á tengilinn Preview undir myndinni til að skoða hvernig hún birtist í mismunandi stærðum.
Ef myndir þurfa að vera í ákvenum stærðum án þess að nokkuð klippist af þeim er þó vissara að vista þær í réttri stærð í myndvinnsluforriti áður en þeim er hlaðið upp.
Sjá upplýsingar um myndastærðir í efniseingum neðar hér á síðunni.
Myndir sem hlaðið er upp á vefinn þurfa ekki að vera í fullri prentupplausn. En þær mega heldur ekki vera of litlar. Annars er hætta á að þær verði of óskýrar og pixlaðar.
Það er nóg að langhliðin á myndinni, hvort sem það er hæð eða breidd, sé 1920 punktar. Það er passleg myndastærð fyrir vefinn.
Stundum klippast mikilvægir hlutar af myndum þegar búið er að stilla þeim upp á vefinn. Það er til dæmis algengt þegar fyrirtækjamerki eru notuð í Infoboxum og Fókusboxum.
Það er hægt að stilla fókuspunktinn á myndum. Sjá upplýsingar hér ofar: Breyta upplýsingum um mynd.
En oft er vissara að vista myndina í réttri stærð með myndvinnsluforriti áður en henni er hlaðið upp á vefinn. Canva er t.d. gott tæki til þess. Það er ókeypis upp að vissu marki.
Myndin þarf þá að passa inn í rammann/stærðina sem notuð er í viðkomandi efniseiningu, eða vera í sömu stærðarhlutföllum:
- Preview-mynd á síðum: 1920x1440 punktar
- Preview-mynd á fréttum: 1024x768 punktar
- Mynd í slæðusýningu: 1920x960 punktar
- ATH. að textabox birtist fyrir hluta myndarinnar í slæðusýningu. Það má því ekki vera neitt mikilvægt á myndinni, s.s. andlit á fólki eða lesefni. (Myndir ættu þó ekki að innihalda lesefni).
- Hausmynd: Sjá upplýsingar um stærðarhlutföll mynda: Mynd á stofnana- og sérvefjum
- Mælt er með því að View mode-stillingin á hausmynd sé Banner, Hero eða Rectangle.
- Fókusbox: 1024x1024 punktar
- Image text: 1024x1024 punktar
- Infobox: 1024x768 punktar
Það gerist iðulega að myndir fylgja ekki með þegar síðum á stofnana- og sérvefjum er deilt á Facebook. Oft er ástæðan sú að myndir eru of stórar til að Facebook grípi þær. Best er að myndir séu ekki stærri en 1 MB (u.þ.b. 2000 px) ef þær eiga að birtast sjálfkrafa við deilingu. (Sjá leiðbeiningarnar Stærðin skiptir máli hér fyrir ofan).
En það er til önnur og aðeins flóknari leið við að leysa þetta vandamál. Hér er hún:
1. Finndu slóðina að myndinni
- Veldu Content (blaðatáknið) → Media.
- Finndu myndina sem þú vilt að fylgi með deilingunni, í listanum.
Þú getur notað leitina og síunina efst á síðunni. - Smelltu á nafn myndarinnar í listanum.
Þá opnast breytingasíða fyir myndina. - Smelltu á heiti myndarinnar fyrir ofan smámyndina.
Þá opnast myndin í nýjum glugga. Slóðin birtist fyrir ofan hana.
Dæmi: https://drupal.hi.is/sites/drupal.hi.is/files/2024-01/handrit.jpg - Afritaðu slóðina og geymdu hana.
2. Bættu myndinni við síðuna
- Farðu í bakhluta (edit-hluta) síðunnar sem þú vilt bæta myndinni við.
- Í hliðardálkinum hægra megin, undir hlutanum Metatags finnur þú hlutann Ítarlegt.
Þar undir er reitur með fyrirsögninni Image.
(Best að nota ctrl-F til að finna þetta allt saman). - Settu slóðina að myndinni í Image-reitinn.
- Vistaðu síðuna.
3. Prófaðu Facebook
- Farðu á síðuna Sharing debugger á Facebook.
- Settu slóðina að síðunni í efsta reitinn.
- Smelltu á hnappinn Debug.
Eftir smá stund ætti myndin þá að birtast í sýnishorninu á þessari debug-síðunni.
Mögulega þarf líka að setja slóðina að myndinni í reitinn efst og endurtaka skref 1 og 2 í þessum hluta. - Prófaðu að deila síðunni aftur. Þá ætti myndin að fylgja með.