Eyða síðu

Það er hægt að eyða síðum fyrir fullt og allt af Drupal-vefjum. Það á aðeins að gera ef þú ert alveg viss um að það þurfi aldrei aftur að nota síðuna.

Þegar búið er að eyða síðu er ekki hægt að fá hana upp aftur. Þess vegna er oft gott að byrja á því að fela síðuna. Þá er alltaf möguleiki á að birta hana aftur síðar.

Ef enginn kvartar yfir því að síðan sé horfin, til dæmis eftir að eitt ár er liðið frá því hún var falin, ætti að vera óhætt að eyða henni alveg.

Þetta eru aðferðirnar við að eyða síðu:

  1. Vertu á síðunni sem þú ætlar að eyða.
  2. Farðu í breytingahlutann á henni.
  3. Smelltu á hnappinn Delete, ofarlega í hliðardálkinum hægra megin á síðunni:

Eyða síðu af aðalvefjum

Þá lendirðu á síðu þar sem þú þarft að staðfesta að þú viljir örugglega eyða síðunni.

Þú getur smellt á Cancel og hætt við.

Ef þú smellir á Delete á staðfestingarsíðunni verður ekki aftur snúið!

  1. Vertu á síðunni sem þú ætlar að eyða.
  2. Smelltu á tengilinn Delete, neðst á síðunni:

Eyða síðu af stofnana- og sérvefjum

Þá lendirðu á síðu þar sem þú þarft að staðfesta að þú viljir örugglega eyða síðunni.

Þú getur smellt á hnappinn Hætta við (Cancel)

Ef þú smellir á hnappinn Delete á staðfestingarsíðunni verður ekki aftur snúið!

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.