Efniseiningar á aðalvefjum
Þegar ný síða hefur verið stofnuð er hægt að bæta efniseiningum við hana. Til að bæta við nýrri einingu smellir þú á hnappinn Add section.
Á aðalvefjum HÍ eru nokkrar sameiginlegar stillingar á öllum efniseiningum:
Þema (Theme) stjórnar lit einingarinnar:
- None: Hvítur bakgrunnur
- Light: Ljósblár bakgrunnur
Top Spacing og Bottom Spacing: stjórna því hversu mikið bil eða autt pláss er fyrir ofan og neðan efniseininguna. Hér er um þrennt að velja:
- None: Lítið/ekkert bil
- Small: Miðlungsbil
- Large: Mikið bil
Width: Stjórnar breiddinni á efniseiningunni. Hér eru fjórar mismunandi stillingar í boði:
- Full screen
- Wide width (almennt á efni að vera í þessari breidd).
- Content width
- Text width
Þegar þú ert skráð(ur) inn í Drupal getur þú sett músina yfir efniseininguna sem þú vilt breyta. Það þarf því ekki alltaf að fara í bakhluta (edit-hluta) síðunnar sem þú vilt breyta.
Þegar músin er sett yfir eininguna birtast þessi tákn sem þú getur smellt á:
- Blýantstáknið. Opnar stillingar í glugga hægra megin á síðunni. Þar er hægt að breyta viðkomandi einingu eftir þörfum. Eða fjarlægja hana. Það þarf að muna að vista breytingarnar!
- Ör upp og niður. Færir eininguna upp eða niður um eitt sæti á síðunni.
- Plús-merkin: Birtast fyrir ofan og neðan hverja einingu. Með því að smella á þau er hægt að bæta nýrri einingu fyrir ofan eða neðan viðkomandi einingu.
Neðst í stillingum á hverri einingu er möguleikinn Published. Með því að afmerkja við þennan möguleika er hægt að fela eininguna. Þá er bara þessi ákveðna eining falin, en ekki öll síðan. Þetta kemur sér vel ef þú ert að vinna með nýja efniseiningu sem er ekki tilbúin til birtingar. Eða ef efnið þarf ekki að vera sýnilegt nema í ákveðinn tíma. Þá er hægt að vista síðuna án þess að breytingarnar verði sýnilegar öðrum en þeim sem eru skráð inn í Drupal.
Þegar eining er falin sést hún bara þegar við erum skráð inn í Drupal og verður bleik á litinn.
Þú getur þá haldið áfram að breyta efninu síðar. Þegar einingin er tilbúin til birtingar merkir þú við Published-möguleikan (gerir takkann grænan) og vistar síðuna.