Efnisflokkun á stofnana- og sérvefjum
Á stofnana- og sérvefjum er hægt að setja fréttir í efnisflokka. Einnig er hægt að bæta nýjum byggingum við lista yfir byggingar, til að nota í staðsetningum viðburða.
Flokkarnir verða að vera til í bakhluta vefsins áður en fréttirnar eru settar í þá.
Það er bara í boði fyrir notendur með stjórnendaaðgang að sýsla með efnisflokka.
Yfirflokkar á vefnum eru:
- Byggingar (Buildings)
- Höfundarréttur mynda (Copyright).
Flokkunarorð bætast sjálfkrafa við þennan flokk eftir því sem þeim er bætt við í upplýsingar um myndir. (Sjá nánar um myndir og myndanotkun). - Viðburðaflokkar (Event category) - Ekki notað.
- Fréttaflokkar (News category)
- Smelltu á Uppbygging → Flokkun.
Þá birtist listi yfir yfirflokkana (sjá ofar). - Smelltu á hnappinn List terms aftan við yfirflokkinn sem þú vilt sýsla með.
- Á síðu sem þá birtist smellirðu á hnappinn Bæta við flokkunarorði.
Þá lendirðu á síðu þar sem þú býrð til nýjan flokk. - Í reitinn Nafn skrifar þú nafn flokksins sem þú vilt búa til. Fleira þarf ekki að fylla út.
- Smelltu á hnappinn Vista eða Save and go to list.
Það er hægt að endurskipuleggja og raða efnisflokkum sem eru til á vefnum:
- Smelltu á Uppbygging -> Flokkun.
Þá birtist listi yfir yfirflokkana (sjá ofar). - Smelltu á hnappinn List terms aftan við yfirflokkinn sem þú vilt sýsla með.
Þegar hingað er komið getur þú dregið flokkana upp og niður með músinni og flokkað þá niður yfir- og undirflokka. (Drag-n-drop-möguleikinn).
Þú getur líka raðað þeim í stafrófsröð með því að smella á hnappinn Endurstilla í stafrófsröð.
- Smelltu á Uppbygging -> Flokkun.
Þá birtist listi yfir yfirflokkana (sjá ofar). - Smelltu á hnappinn List terms aftan við yfirflokkinn sem þú vilt sýsla með.
- Við hnappinn Edit aftan við flokkinn sem þú vilt eyða smellir þú á píluna og velur Delete.
- Á staðfestingarsíðunni sem þá birtist getur þú smellt á hnappinn Hætta við (eða Cancel). Ef þú smellir á hnappinn Delete verður ekki aftur snúið!