Frétt á stofnana- og sérvefjum

Fréttasíður eru notaðar til að birta fréttir á vefnum. Á sumum Drupal-vefjum HÍ eru þær líka notaðar til að segja frá viðburðum framundan.

Þegar ný fréttasíða er stofnuð sést þetta efst á henni:

Image
Breytingahluti fréttasíðu
  • Titill: Í þennan reit kemur fyrirsögn fréttarinnar.
  • Tungumál: Hér er valið rétt tungumál síðunnar, hvort hún er á íslensku eða ensku.
  • Dagsetning: Hér er dagsetning fréttarinnar valin. Sjálfgefin dagsetning er dagurinn í dag. Það er líka hægt að birta dagsetningar fram og aftur í tímann.
    • Það er ekki hægt að tímastilla fréttina og láta hana birtast sjálfkrafa í framtíðinni. Hún birtist alltaf um leið og búið er að vista síðuna.
  • Flokkur (Category): Ef fréttin á að tilheyra einhverjum flokki er hann skrifaður í þennan reit.
    • Flokkurinn verður að vera til í bakgrunni vefsins áður en hann er valinn.
    • Það er ekki nauðsynlegt að setja fréttirnar í flokka. En ef fyrirsjáanlegt er að vefurinn verði stór og efnismikill gæti flokkun á fréttum komið að gagni.
    • Leiðbeiningar um efnisflokkun.

Fréttasíðan sjálf skiptist svo í þrjá hluta. Fjóra ef þú vilt hafa hliðarslá á síðunni. Flakkað er á milli hlutanna með flipunum í edit-hluta síðunnar:

Image
Síðuhlutar

Í reitinn Preview text er nauðsynlegt að setja inngangstexta. Hann á ekki að vera lengri en ein til tvær setningar. Hann á að lýsa umfjöllunarefni fréttarinnar í örstuttu máli.

Í hlutanum Preview image þarf að vera mynd. Gott er að hún tengist efni fréttarinnar, en það er ekki nauðsynlegt.

Sjá nánar: Leiðbeiningar um myndir og myndanotkun.

Efnið úr forskoðunarhlutanum birtist ekki á síðunni sjálfri. En það birtist:

Í haus fréttarinnar er möguleiki að hafa mynd. Það er ekki nauðsynlegt, en sterklega mælt með því. Ef það er ekki hausmynd á fréttinni birtist fyrirsögnin ekki á síðunni.

Sjá nánar: Leiðbeiningar um myndir og myndanotkun.

Hausmyndin fær bláa slikju yfir sig. Fyrirsögnin birtist yfir henni miðri.

Ef þú vilt hafa hliðarstiku með fréttinni velurðu Left eða Right í valmyndinni Sidebar fyrir ofan flipana. (Sjá mynd ofar á síðunni). Hún getur verið hægra eða vinstra megin á síðunni.

Efni í boði í hliðarslánni er:

Þegar fyrsta fréttin hefur verið skrifuð og birt á vefnum er hægt að birta fréttayfirlit á forsíðu og á venjulegum síðum. Það er gert með einingunni Block reference. Sjá leiðbeiningar.

Þær birtast svo sjálfkrafa í fréttayfirlitinu upp frá því.

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.