Slideshow 50/50 einingin birtir mynd með textaboxi vinstra megin. Hún virkar og lítur út líkt og fókusbox.

Nema að myndirnar staflast ekki ofan á hver aðra. Hér hægt að fletta á milli mynda-/textaboxa ef slæðurnar eru fleiri en ein í sömu einingu. Uppi í hægra horni í textaboxinu birtast þá örvatakkar sem hægt er að smella á til að fletta í gegnum slæðurnar.

Hér eru nokkur svæði til að fylla út:

Mynd

Til að bæta við mynd smellir þú á hnappinn Add media. Þá geturðu bætt við mynd úr safninu á vefnum eða hlaðið upp nýrri mynd.

Í hlutanum View mode velur þú stærðina á boxinu. Hér er um tvennt að velja:

  • Banner 5050
  • Squared

Textaboxið

  • Pre header: Undirfyrirsögn, ef þess þarf
  • Title: Aðalfyrirsögnin í textaboxinu
  • Sub header: Undirfyrirsögn, ef þess þarf
  • Text: Í þennan reit kemur aðaltextinn í textaboxinu. Hér er bara gert ráð fyrir stuttum texta.

Hnappur

Ef þú vilt hafa hnapp (call-to-action-hnapp) í textaboxinu fyllir þú út í reinina fyrir hnappinn:

  • URL: Hér kemur slóð síðunnar, með node-númeri, eða heiti hennar.
  • Link text: Heitið á hnappinum.
  • Í stillingunum attributes er útliti og lit hnappsins breytt:
    • Link style: Útlit (Sjá útlit á hnöppum)
    • Link color: Litur á hnappi:
      • None/Default: HÍ-blár litur
      • Pink: Bleikur

 

Slæðunum er svo hægt að raða með því að draga þær upp og niður með músinni (Drag-n-drop-möguleikinn).

Til að bæta nýrri slæðu við eininguna smellir þú á hnappinn Add Slide og endurtekur leikinn hér fyrir ofan.

Dæmi um útlit á slæðusýningu:

Slideshow 50/50
Var efnið hjálplegt?
Já

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Deila