Akkeriseiningin (Anchor) býr til bókamerki á síðunni. Hún er ekki sýnileg á síðunni sjálfri, heldur bara í bakhlutanum á henni. Með akkerinu er hægt að búa til tengil sem vísar beint í ákveðinn hluta á síðunni.
Sjá líka um beina tengla í harmónikkulista.
Í reitinn Title kemur heiti akkerisins. Öðrum stillingum í einingunni þarf ekki að breyta.
Það er góð regla að nota bara lágstafi og ekki sér-íslenska stafi.
Dæmi
Heiti akkerisins er prufa.
Slóð síðunnar er https://english.hi.is/prufusida.
Aftan við slóðina er þá hægt að bæta við #-merki (kassamerki, hashtag-merki) ásamt heitinu á akkerinu.
Í þessu tilfelli verður slóðin þá: https://english.hi.is/prufusida#prufa.
Sé farið á þessa slóð lendir þú beint á hluta síðunnar þar sem akkerið er.
Takmarkanir
Akkerið er bara hægt að nota á síðunni sjálfri. Það er ekki hægt að nota það inni í öðrum síðuhlutum, á borð við harmónikkulistum eða inni í flipum.
Það er líka hægt að útbúa tengla sem vísa beint í ákveðna hluta af harmónikkulistum eða í ákveðna hluta af flipum.
Önnur leið til að búa til beinan tengil í ákveðinn hluta síðunnar er að búa til tengil í fyrirsögn í textaboxi. Þá þarf ekki að nota anchor-eininguna. En það er bara hægt að gera þetta ef fyrirsögnin er inni í textasvæði.
Þá þarf að fara í HTML-kóða textans (nota Source-skipunina í textaritlinum) og bæta við kóðanum id="nafn" við fyrirsagnarskipunina. Í staðinn fyrir nafn getur komið hvað sem er. Við mælum þó með að nota ekki íslenska stafi. Einnig er betra að nota bandstrik frekar en stafabil.
DÆMI
Við viljum geta vísað beint á fyrirsögnina Mikilvægt afl í upplýstri umræðu á síðunni Um háskólann.
Opnum bakhluta textaboxins og förum í HTML-kóðann.
Kóðinn fyrir fyrirsögnina er <h3>Mikilvægt afl í upplýstri umræðu</h3>.
Bætum id-hlutanum við fyrirsagnaskipunina framan við textann. Við viljum að hann heiti mikilvaegt-afl-i-upplystri-umraedu.
Kóðinn verður þá: <h3 id="mikilvaegt-afl-i-upplystri-umraedu">Mikilvægt afl í upplýstri umræðu</h3>.
Þá getum við búið til tengil beint í þennan hluta:
Bætum nafninu aftan við slóðina á síðunni. Slóðin er: https://www.hi.is/haskolinn/haskolasamfelagid/um-haskolann.
Aftan við slóðina bætum við #-merki (kassamerki, hashtag-merki) og þar á eftir nafninu á fyrirsögninni. Í þessu tilfelli mikilvaegt-afl-i-upplystri-umraedu.
Full slóð verður þá: https://www.hi.is/haskolinn/haskolasamfelagid/um-haskolann#mikilvaegt-afl-i-upplystri-umraedu
Eða í vefvænni framsetningu: