Gallerý með smámyndum

Gallery with thumbnails. Þessi eining birtir myndasafn með smámyndum fyrir neðan.

Myndum sem settar eru í þetta gallerý fer best á því að vera 1920x1280 punktar. Ef þær eru breiðari eða í öðrum hlutföllum er hætt við að mikilvægir hlutar á þeim klippist af.

Fremsta myndin birtist þegar komið er á síðuna. Hægt er að fletta í gegnum þær með því að smella á örvatakka fyrir neðan myndina. Fyrir neðan birtast svo smámyndir, fjórar í einu, sem líka er hægt að smella á.

Eftir að einingunni hefur verið bætt við síðuna smellir þú á hnappinn Add media. Þú getur þá hlaðið mynd upp á vefinn eða sótt mynd sem nú þegar er búið að hlaða upp.

Sjá nánar um myndir og myndanotkun á aðalvefjum.

Til að fjarlægja mynd úr safninu smellirðu á X-hnappinn sem er yfir myndinni.

Til að breyta upplýsingum um myndina smellirðu á blýantstáknið. Þá opnast gluggi þar sem þú getur bætt við eða breytt upplýsingum, s.s. alt-texta og nafni myndarinnar eða leitarorðum.

Image
Gallerý eða myndasafn á aðalvef HÍ

Það er hægt að breyta röðinni á myndunum með því að draga þær til og frá með músinni (Drag-n-drop-möguleikinn).

Sjá líka: Gallerý

Dæmi um útlit á myndasafni með smámyndum:

Image
Sýnishorn af gallerýi með smámynd á vef Háskóla Íslands
Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.