Tabs-einingin býr til flipa (tabs). Þessa einingu getur verið hentugt að nota ef síða er efnismikil og/eða kaflaskipt. Hver kafli eða hluti getur þá verið í sínum eigin flipa.
Þegar búið er að bæta þessari einingu við er hægt að bæta öðrum efniseiningum inn í hvern flipa á síðunni.
Neðst í stillingum hvers flipa er hnappur sem heitir Add Block reference. Við hliðina á honum er ör sem bendir niður. Hægt er að smella á hana til að bæta við öðrum einingum inn í flipann:
Hægt er að breyta röð flipanna með því að draga þá upp og niður með músinni (Drag-n-drop-möguleikinn).
Þegar flipaskipt síða er opnuð birtist innihald fremsta flipans alltaf sjálfkrafa. Það er ekki hægt að búa til beinan tengil til að vísa á innihald hinna flipanna.
Dæmi um útlit á flipaskiptri síðu
Tenglar í flipa
Það er hægt að búa til tengla sem vísa beint inn í ákveðna flipa.
Dæmi:
Búum til tengil sem vísar á upplýsingar um starfsemi Fjármálasviðs.
Slóðin að síðunni er: https://english.hi.is/about-ui/central-administration/finance.
Aftan við slóðina er bætt við #tab- og þar á eftir heitinu á flipanum. Í þessu tilfelli er slóðin þá #tab-services.
Viðbótin verður að vera skrifuð með lágstöfum til að hún virki.
Öll slóðin verður þá
https://english.hi.is/about-ui/central-administration/finance#tab-services
Eða með vefvænni framsetningu:
Division of Finance: Services.
Ef heiti flipans er fleiri en eitt orð með stafabilum á milli er notað - (bandstrik) í stað stafabila.
Slóð að flipanum For the media á síðu Markaðs- og samskiptasviðs verður til dæmis:
https://english.hi.is/about-ui/central-administration/marketing-and-public-relations#tab-for-the-media
Eða í vefvænni framsetningu:
Division of Marketing and Public Relations: For the media