Hægt er að birta tengla á tvenns konar hátt: Inni í textanum sjálfum eða í skilgreindum tenglasvæðum í þessum efniseiningum:
Aðalvefir
Stofnana- og sérvefir
Hér er fjallað um hvernig tenglar eru birtir í textasvæði
Hér gilda líka almennar reglur um framsetningu efnis og tengla á vefnum. Sjá leiðbeiningar um tengla á síðunni Skrifað fyrir vefinn.
Node-númer verður til sjálfkrafa þegar ný síða er stofnuð. Númerið er n.k. kennitala hverrar síðu. Númerið breytist aldrei, þó að slóðin breytist, t.d. ef nafni síðunnar er breytt, eða hún færð til í leiðakerfinu.
Rétt notkun node-númera kemur líka í veg fyrir að tenglar brotni.
Það er mikilvægt að nota node-númerin þegar tengt er yfir á síður innan sama vefs. Undantekning á þessu er þegar tengt er í starfsmannasíður. Sjá hér fyrir neðan: Tenglum bætt í texta – Tengill í síðu innan vefsins.
Node-númerið breytist aldrei. Það er n.k. kennitala hverrar síðu. Númerið sést í slóðinni þegar bakhluti síðunnar (edit-hlutinn) er opinn.
Síðan Rules - Code of Conduct á enska vefnum hefur t.d. node-númerið 4178.
Veldu textann sem þú vilt nota sem tengil.
Smelltu á tenglahnappinn í textaritlinum. Þá opnast svona gluggi:
Í reitinn Link URL kemur slóðin að síðunni sem þú vilt tengja í.
Smelltu á Insert-hnappinn. (Gætir þurft að smella aftur á hann).
Mundu að vista síðuna/textablokkina.
Aðferðin við að búa til tengil á síðu innan sama vefs er sú sama og lýst er hér fyrir ofan. Nema að í stað vefslóðar notarðu node-númer síðunnar.
Einfaldast er að skrifa nafn síðunnar sem þú vilt tengja á í reitinn Link URL. Reiturinn virkar þá eins og leitargluggi. Hann birtir lista yfir síður sem eru til á vefnum þegar þú byrjar að skrifa í hann. Þegar þú finnur síðuna í listanum smellir þú á hana. Þá verður til tengill á forminu /node/[númer].
Þegar tengillinn er tilbúinn getur þú smellt á hann og athugað hvort þetta er rétt síða, áður en þú vistar breytinguna.
Þú getur líka fundið node-númer síðunnar með því að fara í breytingahluta (edit-hluta) hennar. Þá birtist það í slóð síðunnar, efst í vafraglugganum:
Það er nóg að afrita /node/[númerið] af slóðinni og setja það í Link-URL-reitinn.
Sama aðferð er notuð við að búa til tengla í efniseiningunum sem eru nefndar efst á þessari síðu.
Tenglar í starfsmannasíður
Undantekning er þegar tengt er í síður starfsmanna. Í Link URL-reitinn kemur þá /starfsfolk/[notandanafn]. (eða /staff/[notandanafn] á enska).
- Íslenski: /starfsfolk/sbo
- Enski: /staff/sbo
Finndu slóðina að skjalinu sem þú vilt tengja í. Sjá leiðbeiningar.
Slóðin að skjalinu fer í reitinn Link-URL, samkvæmt leiðbeiningunum hér fyrir ofan.
Í reitinn Link URL skrifar þú mailto: og þar á eftir netfangið. Ekkert bil á milli.
Dæmi: mailto:hi@hi.is
Til að gefa símanotendum möguleika á að smella á símanúmer til að hringja í kemur símanúmerið í Link URL reitinn með textanum tel: á undan. Ekkert bili á milli.
Dæmi: tel:5254000
Í venjulegum texta er hægt að velja hvort tenglar opnast í nýjum eða sama glugga:
- Smelltu á tengilinn í textaritlinum.
Smelltu á hnappinn Link properties (hnappinn í miðjunni)
Merktu eða afmerktu við möguleikann Open in new window.
Stundum viljum við búa til tengla sem vísa beint á ákveðna hluta síðunnar. Það einfaldar oft fyrir fólki og sparar leitina ef síðan er mjög efnismikil.
Það eru nokkrar aðferðir til þess:
- Tenglar í harmónikkulista (accordion)
- Tenglar í flipa (tabs) (bara á aðalvefjum)
- Nota Anchor-eininguna (bara á aðalvefjum)
- Búa til beinan tengil í fyrirsögn
Heiti á tenglum þurfa að lýsa því sem er á bakvið þá. Það er ekki nóg að tenglar heiti hér eða lesa meira. Þetta á við á öllum vefjum. Ekki bara hjá Háskóla Íslands.
Nánari umfjöllun um notkun tengla eru á vef Hönnunarstaðals HÍ.