Slæðusýningar á stofnana- og sérvefjum
Slideshow-einingin er í boði í haus- (header)-hlutanum á forsíðu og á venjulegum síðum. Með henni getum við birt eina eða fleiri myndir efst í síðuhausnum.
Ef myndirnar eru tvær eða fleiri er möguleiki á að láta flettast sjálfkrafa á milli þeirra á nokkurra sekúndna fresti. Myndirnar má nota sem tengla yfir í aðrar síður.
Til að bæta við mynd í slæðuna smellir þú á tengilinn IMAGE og svo á hnappinn Select entities. Þá opnast sprettigluggi þar sem þú finnur myndina. Sjá nánar um myndir og myndanotkun.
Í reitinn Text kemur fyrirsögn (Heading) og texti yfir myndina. Textinn birtist neðarlega í vinstra horni myndarinnar. Ekki hafa textann langan. Í mesta lagi eina til tvær setningar.
Ef þú vilt að slæðan virki sem tengil setur þú slóð síðunnar í reitinn Vefslóð. Heiti tengilsins kemur í reitinn Link text. Sjá nánar um meðferð tengla.
Til að bæta annarri slæðu við sýninguna smellir þú á hnappinn Bæta við Slide.
Til að eyða slæðu úr sýningunni smellir þú á hnappinn Fjarlægja, efst við viðkomandi slæðu.
Stærð á slæðusýningunni riðlast ef hliðardálkur er notaður á síðunni. Á forsíðunni er dæmi um slæðusýningu.
Undir Vefslóðarreitunum eru stillingar fyrir lit á texta á hverri slæðu.
Ef merkt er við Gradient overlay birtist dökk slikja yfir neðri hluta myndarinnar.
Í valmyndinni Text color er valið hvort textinn á myndinni er svartur (Dark) eða hvítur (Light).
Neðst í slæðusýningunni eru stillingar á því hvort og þá hvernig flettist á milli myndanna:
- Dots: Sýnir punkta neðst í miðjunni á myndinni. Punktarnir eru jafn margir og myndirnar í sýningunni. Sú sem birtist hverju sinni er táknuð með rauðum punkti.
- Arrows: Sýnir örvar sem birtast fyrir neðan myndina. Hægt er að smella á þær til að fletta í gegnum myndirnar
- Autoplay: Ef hakað er við þetta box spilast myndasýningin sjálfkrafa. Annars þarf fólk að fletta sjálft í gegnum sýninguna með músinni.
- Autoplay speed: Hér velur þú tíma sem líður á milli mynda. Sýningin stöðvast alltaf þegar músarbendillinn er settur yfir myndina.
- Ekkert: U.þ.b. hálf sekúnda á milli flettinga.
- Slow: Fjórar sekúndur
- Medium: Tvær sekúndur
- Fast: 1 sekúnda.
- Effect: Hér velur þú hvernig skiptingin á myndunum verður:
- Slide: Flettist á milli myndanna. Mynd kemur inn frá hægri til vinstri.
- Fade: Myndir dofna og birtast til skiptist.
- Ef ekkert er valið er Slide-möguleikinn virkur.