Mynd með textaboxi á aðalvef

Image Text einingin birtir eina mynd með textaboxi hægra eða vinstra megin.

Mynd

Eftir að búið er að bæta einingunni við smellir þú á hnappinn Add media til að bæta myndinni við. Þá getur þú hlaðið upp mynd eða notað mynd sem nú þegar er búið að hlaða upp.

Nánar um myndir á aðalvefjum.

Í stillingunni View mode velur þú stærð myndarinnar. Hér er um tvær stærði að velja. Hér er miðað við að breiddarstillingin á einingunni sé Full screen. Í minni breiddarstillingum eru stærðarhlutföllin þau sömu:

  • Banner 5050: 768x568 punktar
  • Squared: 768×768

Staðsetning myndarinnar, þ.e. hvort hún er hægra eða vinstra megin við textaboxið, er valin efst, í stillingunni Image position.

Textaboxið

Í textaboxinu eru nokkrir reitir til að fylla út:

  • Kicker: Ef þú vilt hafa yfirfyrirsögn (augabrún) er hún skrifuð í þennan reit.
  • Title: Aðalfyrirsögnin í textaboxinu.
  • Text: Stuttur texti með myndinni. Nauðsynlegt að fylla út.

Hnappur

Það er í boði að hafa einn hnapp/tengil (call-to-action-hnapp) yfir á aðra síðu. Ef hann á að vera með þarf heiti síðunnar eða slóð með node-númeri að vera í reinum URL.

Í reitinn Link text kemur heitið á hnappinum.

Í stillingunni Attributes er valið útlit á hnappinn. Sjá nánar um hnappa.

Önnur aðferð við að birta mynd með textaboxi er að nota fókusbox.

 

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.