Frétt á aðalvefjum
Síðutegundin Fréttir (News) er notuð til að birta fréttir af starfsemi HÍ.
Sjá líka: Stofna nýja síðu.
Til að flýta fyrir má fara leiðina Content → Add content → From template og velja þar Frétt.
Efst á fréttasíðunni eru nokkur atriði sem þarf að fylla út:
- Title: Í þennan reit kemur fyrirsögnin.
- Title wrapper width: Þetta á að vera stillt á Wide width.
- Date: Hér þarf að velja dagsetningu fréttarinnar. Sjálfgefin dagsetning er dagurinn í dag. Sjá nánar um dagsetningu hér fyrir neðan.
Fréttasíðan skiptist svo í fjóra hluta:
- Forskoða (Preview)
- Haus (Header)
- Meginmál (Content)
- Tögun
Í reitinn Preview text er nauðsynlegt að setja inngangstexta. Hann á ekki að vera lengri en ein til tvær setningar. Hann á að lýsa umfjöllunarefni fréttarinnar í örstuttu máli.
Í hlutanum Preview image þarf að vera mynd. Gott er að hún tengist efni fréttarinnar, en það er ekki nauðsynlegt. Þetta er myndin sem birtist í fréttayfirliti, t.d. á forsíðu vefsins. Algengt er að Preview image og hausmyndin efst sé sú sama, en það er ekki nauðsynlegt.
Hér á að vera ein mynd efst í hausnum.
Stillingarnar á myndinni eiga að vera:
- Theme = None
- Expandable = Nei
- Top spacing = Large
- Bottom spacing = Large
- Width = Wide width
- View mode = Banner
- Til að myndin passi inn í boxið er best að hún sé í stærðinni 1440x600 punktar, eða í sömu hlutföllum.
- Enginn texti í caption-reitnum.
Það þarf líka að passa að merkt sé við möguleikann Published. (Hafa hann grænmerktan)
Í þennan hluta fer allt efni, s.s. texti, myndir og myndbönd sem eiga að birtast í fréttinni.
Breiddarstilling á efniseiningum á að vera í stillingunni Content width.
Einingar í boði í þessum hluta eru:
- Akkeri (Anchor)
- Blokkir (Block reference)
- Efnisbox (Custom box)
- Gallerý
- Harmónikkulisti (Accordion)
- Mynd (Image)
- Mynd með textaboxi (Image text)
- Myndband (Remote video)
- Myndband í síðuhaus (Video)
- Myndband með textaboxi (Video text)
- Skjal (File)
- Slæðusýning 50/50 (Slideshow 50/50)
- Stór tengill (Page reference)
- Texti
- Tveir dálkar (Two columns)
Deiling á samfélagsmiðlum
Neðst í fréttinni eiga að vera hnappar fyrir samfélagsmiðladeilingu. Þeir eru birtir með einingunni Block reference.
Í þessum hluta eru þrír mismunandi hlutar fyrir efnisflokkun.
Flokkunarorðin verða að vera til í bakhluta vefsins áður en þeim er bætt við reitina.
Í hvern reit kemur eitt flokkunarorð. Ef flokkunarorðin eiga að vera fleiri en eitt er smellt á hnappinn Add another item fyrir neðan listann. Nýtt orð er þá skrifað í reitinn sem birtist. (Gildir þó ekki um reitinn Uppruni efnis).
Til að bæta nýju flokkunarorði við er farið í hlutann:
Structure → Taxonomy.
Þar eru hlutar fyrir hvern af þessum flokkum:
Uppruni efnis
Hér er skrifað hvaða fræðasviði (en ekki deild) fréttin tilheyrir. Ef hún tilheyrir ekki neinu fræðasviði, eða hún tengist Háskólanum almennt er skrifað Háskóli Íslands (eða University of Iceland) í þennan reit.
Orðunum er breytt og bætt í hlutanum Structure → Taxonomy → Fræðasvið. Það á samt ekki að þurfa, því búið er að bæta öllum fræðasviðum við þessi flokkunarorð.
Tögun
Hér eru skrifuð efnisorð eða flokkunarorð tengd síðunni eða umfjöllunarefni hennar.
Þetta geta verið t.d. verið námsleiðir, sérfræðasvið, umfjöllunaratriði greinar/fréttar eða heimsmarkmið SÞ.
Orðunum er breytt og bætt í hlutanum Structure → Taxonomy → Tögun.
Flokkunarorð ættu ekki að vera of mörg. Annars verður flokkunin óljós. Í mesta lagi ætti að hafa fimm flokkunarorð.
Efnisflokkun
Hér er skrifað hvaða fræðasviði og/eða deild síðan tilheyrir. Þetta geta líka verið svið innan sameiginlegrar stjórnsýslu, þjónustueiningar eða verkefni innan háskólans.
Orðunum er breytt og bætt í hlutanum Structure → Taxonomy → Efnisflokkun.
Ef fréttin er stofnuð út frá sniðmáti (Add Content – From template) þarf að muna að breyta dagsetningunni áður en hún er birt. Það er gert í dagatalinu efst á síðunni.
Það er algengast að velja daginn í dag, hver sem hann er. Það er líka hægt að velja dagsetningu aftur í tímann.
Það er ekki hægt láta fréttina birtast sjálfkrafa í framtíðinni. Hún verður sýnileg um leið og hún er vistuð og birt. En það er hægt að fela hana og birta hana svo handvirkt á tilteknum útgáfudegi. (Sjá: Fela eða birta)
Ef fréttin er stofnuð út frá sniðmáti (Add Content – From template) þarf að athuga að brauðmolaslóð síðunnar sé rétt. Það er gert í hliðardálkinum hægra megin, undir liðnum Breadcrumb title.
Algengast er að brauðmolaslóðin sé sú sama og fyrirsögn fréttarinnar.
Ef reiturinn er hafður tómur áður en síðan er vistuð verður brauðmolaslóðin sjálfkrafa sú sama og fyrirsögnin.