Rannsóknarsíða

Á rannsóknarsíðum er umfjöllun um rannsóknir innan HÍ. (Ein rannsókn á hverri síðu). Þær eiga að draga úr þörf á sérvefjum fyrir rannsóknir.

Hér er dæmi um rannsóknarsíðu.

Ný rannsóknarsíða stofnuð

Til að stofna nýja rannsóknarsíðu er best að velja Content → Add content → From template.

Þar finnur þú sniðmát sem heitir Rannsókn. Þar smellir þú á hnappinn Create content from this template (Blaðatáknið).

Rannsóknarsíða

Þá birtist útfyllt síða. Þú getur vistað hana hvenær sem er. Það er samt gott að skrifa fyrirsögnina áður en hún er vistuð.

Mundu að breyta efninu í þessum svæðum:

Í Content-hlutanum er allt innihald síðunnar. Þar er hægt að stilla upp efniseiningum, s.s. texta, myndum og myndböndum eftir því sem þörf er á. (Umfjöllun um efniseiningar).

Breiddarstilling á efniseiningum á venjulega að vera Wide width.

Fastir punktar

Starfsmannalisti

Neðst á síðunni er starfsmannalisti. Hann á að vera af gerðinni Rannsakendur á ensku (eða Rannsakendur á íslensku). Þar er gert ráð fyrir tenglum í starfsmannasíður vísindamanna innan HÍ sem standa að rannsókninni.

Sjá upplýsingar um starfsmannalista.

Utanaðkomandi starfsmenn

Fyrir neðan starfsmannalistann er textabox þar sem hægt er að bæta við öðrum rannsakendum, ef einhver þeirra eru ekki starfsmenn HÍ. Ef enginn rannsakenda er utan HÍ má sleppa þessari einingu.

Samfélagsmiðladeiling

(Block reference – Social sharing). Hún birtir hnappa til að deila síðunni á samfélagsmiðlum. Hún verður að vera með, neðst á síðunni, til að efnisorðin (tögunin) birtist á réttum stað.

Í hliðarstikuna hægra megin á síðunni (Sidebar right) koma ýmsar upplýsingar um rannsóknina og aðstandendur hennar.

Ef eitthvað af þessum svæðum er óútfyllt birtist sá hluti ekki á síðunni.

Lýsingar og leiðbeiningar með þessum hluta eru hér: Síða á aðalvefjum, undir hlutanum Hliðarslá til hægri (Sidebar right).

Hér eru nokkrir reitir sem þarf að fylla út í:

Researchers

Hér koma nöfn fræðimanna sem taka þátt í viðkomandi rannsókn:

  • URL: Slóð að síðu viðkomandi fræðimanns, t.d. starfsmannasíðu HÍ eða rannsóknargátt á Írisi.
    • Ef þetta er tengill á starfsmannasíðu innan vefsins á slóðin að vera á forminu /staff/[notandanafn starfsmanns]. Dæmi: /staff/benedikt. Á íslensku verður slóðin þó önnur. Hún er ekki tilbúin.
  • Link text: Nafn fræðimannsins.

Til að bæta fleiri fræðimönnum við listann er smellt á hnappinn Add another item.

Partners

Þessi hluti er fyrir lista yfir samstarfsaðila í rannsókninni, s.s. stofnanir og/eða fyrirtæki.

  • URL: Slóð að vef samstarfsaðila
  • Link text: Heiti fyrirtækis, stofnunar eða samstarfsaðila

Til að bæta fleiri samstarfsaðilum við listann er smellt á hnappinn Add another item.

Media coverage

Hér er gert ráð fyrir tenglum í fjölmiðlaumfjöllun um rannsóknina, s.s. blaðagreinar eða fréttir á vefnum.

  • URL: Slóð að grein
  • Link text: Fyrirsögn greinarinnar

Til að bæta fleiri fréttum við listann er smellt á hnappinn Add another item.

Published content

Hingað koma tenglar í fræðigreinar og útgefið efni í tengslum við rannsóknina.

  • URL: Slóð að grein
  • Link text: Heiti greinarinnar

Til að bæta fleiri greinum við listann er smellt á hnappinn Add another item.

Media contact

Hér er pláss fyrir upplýsingar um tengilið rannsóknarinnar, einhvern sem fjölmiðlar geta haft samband við ef þeir vilja fjalla um rannsóknina.

  • URL: Slóð að síðu viðkomandi fræðimanns, t.d. starfsmannasíðu HÍ eða rannsóknargátt á Írisi.
  • Link text: Nafn fræðimannsins.

School

Upplýsingar um á hvaða fræðasviði HÍ rannsóknin fer fram.

  • URL: Slóð að síðu fræðasviðs (á forminu /node/númer).
  • Link text: Heiti fræðasviðs

Related studies

Hér koma tenglar á námsleiðir við Háskólann sem tengjast rannsókninni.

  • URL: Slóð að síðu námsleiðar (á forminu /node/númer).
  • Link text: Heiti námsleiðar

Til að bæta fleiri námsleiðum við listann er smellt á hnappinn Add another item.

Faculty

Upplýsingar um í hvaða deild rannsóknin fer fram.

  • URL: Slóð að síðu deildar (á forminu /node/númer).
  • Link text: Heiti deildar

Þegar búið er að stofna síðu út frá sniðmáti (template) er líklegt að það þurfi að skipta um myndir á henni. S.s hausmyndir og forskoðunar-/preview-myndir.

Leiðbeiningar um það eru hér: Myndanotkun – Skipta um myndir.

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.