Grunnnámsleið
Til að búa til námsleiðarsíðu fyrir grunnnámsleið er valið Content → Add content → From template. Þar er valin síðutegundin Námsleiðar-template GRUNNNÁM.
Námsleiðarsíðan skiptist í fjóra hluta:
- Haus (Header)
- Innihald (Content)
- Tögun
- Fyrir leitarvél (ekki skrifa hér)
Í reitinn Title efst á síðunni kemur heiti námsleiðarinnar, og gráða, eins og það er í Kennsluskránni. Ekki hafa einingafjöldann með. Best er að afrita heitið úr kennsluskránni, til að vera viss um að heitið sé eins á báðum vefjum.
Fyrir neðan reitinn á að vera merkt við Hide page title.
Til að hægt sé að vista síðuna þarf að setja námsleiðarnúmer í viðeigandi reit, fyrir neðan fyrirsögnina.
Í haus síðunnar kemur einingin Slæðusýning 50/50. Með texta vinstra megin og mynd hægra megin.
Stillingar á boxinu eiga að vera:
- Theme = None
- Image Position = Right
- Top Spacing = Large
- Bottom Spacing = Large
- Width = Content width
- View mode (stilling undir myndinni) = Banner 5050
Það þarf ekki að fylla út í aðra reiti. Efnið í þá kemur sjálfkrafa úr Kennsluskrá þegar námsleiðarnúmerið er notað.
Neðst í boxinu er tengill í Umsóknar-/samskiptagáttina. Hann kemur með tilbúna sniðmátinu og þarf ekki að breyta honum. Stillingar á honum eru:
- URL = https://ugla.hi.is/namsumsoknir/index.php
- Link text = Apply
- Link style = Default
- Link color = Pink
Fyrir neðan inngangstextann og -myndina eru fjögur upplýsingabox. Þau birtast sjálfkrafa á námsleiðarsíðunni. Upplýsingarnar eru sóttar af síðu námsleiðarinnar í Kennsluskránni:
- Language skills: Sýnir tungumálakröfur fyrir námið
- Programme length: Upplýsingar um hversu langt námið er, miðað við fullt nám
- Study mode: Sýnir hvort þetta er staðnám eða fjarnám
- Appication status: Sýnir hvort það er opið eða lokað fyrir umsóknir.
Innihald
Innihald námsleiðarinnar á að vera, í þesari röð:
Efniseining: Fyrirsögn (Headline).
Stillingar:
- Headline type = H2 large
- Headline alignment = Left
- Theme = None
- Width = Content width
- Headline = Overview (Íslenska heitið er ekki komið á hreint ennþá)
Hér er ekki fyllt út í aðra reiti.
Efniseining: Fyrir þig.
Hér er valið hvort textinn á að vera á íslensku eða ensku.
Fyrir neðan er námsleiðarnúmerið sett í reitinn. Textinn er þá sóttur úr Kennsluskránni
Textanum er breytt á síðu námsleiðarinnar í Kennsluskrá. Hér eiga að koma þrjár til fimm spurningar um hvort námsleiðin höfði til viðkomandi notanda. Settar upp í punktalista. Þær geta t.d. byrjað á:
- Hefur þú áhuga á...
- Vilt þú starfa við...
- Getur þú...
- Sérð þú fyrir þér...
- Hefur þú gaman af...
- Langar þig...
Efniseining: Um námið
Hér er valið hvort textinn á að vera á íslensku eða ensku.
Fyrir neðan er námsleiðarnúmerið sett í reitinn. Textinn er þá sóttur úr Kennsluskránni
Textanum er breytt á síðu námsleiðarinnar í Kennsluskrá. Hingað koma upplýsingar um námið, settar fram á skýran og einfaldan hátt. Engar málalengingar. Hér ætti að nota millifyrirsagnir á borð við:
- Uppbygging náms
- Viðfangsefni (talin upp í punktalista)
- Kjörsvið
- Meginmarkmið
- Fyrirkomulag kennslu
- Annað
Efniseining: Inntökuskilyrði
Hér er valið hvort textinn á að vera á íslensku eða ensku.
Fyrir neðan er námsleiðarnúmerið sett í reitinn. Textinn er þá sóttur úr Kennsluskránni
Þetta sækir upplýsingar um inntökuskilyrði úr hlutanum Aðgangskröfur (Admission requirements) á síðu námsleiðarinnar í Kennsluskránni.
Efniseining: Námskröfur
Hér er valið hvort upplýsingar eiga að vera á íslensku eða ensku.
Í reitinn fyrir neðan er sett inn númer námsleiðarinnar.
Þetta sækir upplýsingar um námskröfur úr samnefndum hluta á síðu námsleiðarinnar í Kennsluskránni.
Efniseining: Harmónikkulisti (Accordion)
Title = Hvar á námið heima? (Á ensku: Where does the programme belong?)
Í textareitinn er nefnt á hvaða sviði og deild námsleiðin er kennd.
Talið upp í punktalista og tenglar yfir á viðkomandi svið og deild.
Efniseining: Námskeið
Hér er merkt við hvort upplýsingarnar eiga að vera á íslensku eða ensku.
Í reitinn fyrir neðan er sett inn númer námsleiðarinnar.
(Sjá leiðbeiningar um námsleiðarnúmer)
Þessi eining sækir yfirlit og upplýsingar um námskeið sem kennd eru á námsleiðinni, eins og þau birtast í Kennsluskránni. Listinn er birtur eftir árum og misserum.
Efniseining: Fyrirsögn (Headline).
Stillingar:
- Headline type = H2 large
- Headline alignment = Left
- Theme = none
- Width = Content width
- Headline = Additional information (Ísl.: Aðrar upplýsingar)
Efniseining: Skiptinám
Hér er valið hvort upplýsingar eiga að vera á íslensku eða ensku.
Fyrir neðan er námsleiðarnúmerið sett í reitinn. Textinn er þá sóttur frá síðu námsleiðarinnar í Kennsluskránni.
Hér er yfirleitt staðlaður texti:
Staðlaður texti á íslensku:
Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla út um allan heim. Í því felast einstök tækifæri til að stunda hluta af náminu við erlenda háskóla, öðlast alþjóðlega reynslu og skapa sér sérstöðu. Nemendur HÍ eiga almennt möguleika á að fara í skiptinám, starfsþjálfun eða sumarnám. Námsdvölin er þó alltaf háð samþykki deilda. Nemendur eiga kost á að fá námskeið metin sem hluta af náminu við HÍ svo dvölin þarf ekki að hafa áhrif á lengd námsins. Meira um möguleika á námsdvöl erlendis [þarf að uppfæra tengilinn – slóð á eftir að breytast]. |
Staðlaður texti á ensku:
The University of Iceland collaborates with over 400 universities worldwide. This provides a unique opportunity to pursue part of your studies at an international university thus gaining added experience and fresh insight into your field of study. Students generally have the opportunity to join an exchange programme, internship, or summer courses. However, exchanges are always subject to faculty approval. Students have the opportunity to have courses evaluated as part of their studies at the University of Iceland, so their stay does not have to affect the duration of their studies. |
Efniseining: Starfsvettvangur
Hér er valið hvort upplýsingar eiga að vera á íslensku eða ensku.
Fyrir neðan er námsleiðarnúmerið sett í reitinn. Textinn er þá sóttur úr Kennsluskránni.
Hér er gert ráð fyrir texta um starfsmöguleika að námi loknu. Dæmi um störf eru oft talin upp í punktalista.
Efniseining: Félagslíf
Hér er valið hvort upplýsingar eiga að vera á íslensku eða ensku.
Fyrir neðan er námsleiðarnúmerið sett í reitinn. Textinn er þá sóttur úr Kennsluskránni
Hér er hafður stuttur texti um félagslíf nemenda innan námsleiðarinnar. T.d. upplýsingar um nemendafélag. Oft er hafður sami texti á námsleiðum innan sama sviðs eða deildar.
Efniseining: Fyrirsögn (Headline).
Stillingar:
- Headline type = H2 large
- Headline alignment = Left
- Theme = none
- Width = Wide width
- Headline = Umsagnir nemenda (á ensku: Students' comments
Efniseining: Efnisbox (Custom box) með virkninni Student comments.
Stillingar:
- Theme = none
- Merkja við Carousel
- Layout = One column grid
- Top spacing = none
- Bottom spacing = Large
Efniseining: Fyrirsögn (Headline).
Stillingar:
- Headline type = H2 large
- Headline alignment = Left
- Theme = Light
- Width = Wide width
- Headline = Hjálplegt efni (á ensku: Helpful content)
Efniseining: Efnisbox (Custom box) með virkninni Helpful content.
Vinna er ekki hafin við íslenska vefinn. Upplýsingar eiga því eftir að bætast við hér.
Stöðluð box á enska vefnum:
Hér er nóg að velja Add existing custom entity. Öll þessi box eru tilbúin:
- How to apply (Title: How to apply, Helpful content)
- Registration (Registration, Helpful content)
- Student Councelling Centre (Student Counselling, Helpful content)
- Academic Calendar (Academic Calendar, Helpful content)
- Help Centre (Service Centre, Helpful content)
- Minor and major (Minor and Major, Helpful content)
- FAQ (FAQ, Helpful content)
Efniseining: Fyrirsögn (Headline).
Stillingar:
- Headline type = H2 large
- Headline alignment = Left
- Theme = none
- Width = Wide width
- Headline = Hafðu samband (Á ensku: Contact us)
- Stuttur texti / Short text = Hafðu samband ef þú vilt spyrja einhvers (Á ensku: If you still have questions, feel free to contact us.)
Hér á að vera Custom box með virkninni Contact box (Tengiliðabox). Með upplýsingum um tengiliðaupplýsingar viðkomandi sviðs.
Þau eru til í bakgrunni vefsins. Það er því nóg að velja Add existing custom entity.
Tögun
Þessi hluti er fyrir leitarorð.
Reiturinn Fyrir námsleit er aðeins notaður til að merkja hvort námið er ætlað eða hentar erlendum nemendum. Þá er skrifað International programme í reitinn.
Í reitinn Tögun eru sett leitarorð fyrir námsleiðina. Þetta eru leitarorð sem við viljum að verði til þess að námsleiðin finnist í leitinni á vefnum og í námsleiðaleitinni.
Hér er sett eitt leitarorð í hvern reit. Til að bæta öðrum reit við er smellt á hnappinn Add another item.
Leitarorðin verða að vera til á vefnum áður en þau eru skrifuð í reitina. Til að bæta við nýjum leitarorðum er þessi leið farin:
Structure -> Taxonomy -> Tögun.
Nýju leitarorði er bætt við safnið með því að smella á hnappinn Add term
Fyrir leitarvél (Ekki skrifa hér)
Flestar upplýsingar í þessum hluta eru sóttar af síðu námsleiðarinnar í Kennsluskrá og þarf því ekki að fylla þær út.
En hér þarf að bæta námsleiðinni við í Námsvalshjólið.
Nöfnin á flokkunum eru skrifuð í viðeigandi reiti undir hlutanum Námshjól. Hér eiga í mesta lagi að vera tveir flokkar.