Hlaða upp myndbandi á stofnana- og sérvefi

Myndband verður að vera til á Youtube (eða Vimeo) áður en þessi leið er farin. Ekkert mælir á móti því að stofnanir, svið eða deildir innan HÍ eigi sína eigin Youtube-síðu. En það má líka hafa samband við vefritstjóra og óska eftir því að myndbandi verði bætt við Youtube-síðu HÍ.

Til að bæta myndbandi við vefinn er þetta aðferðin:

  1. Smelltu á Innihald (eða Content) → Media → Bæta við margmiðlunarefni (eða Add media) → Remote video.
    Ekki velja möguleikann Video. Það hleður upp myndbandi á vefinn. Þessir vefir eru ekki til þess að geyma myndbönd. (Undantekning er þó ef myndband er notað í hausnum á forsíðu. Sjá leiðbeiningar um myndband á forsíðu).
  2. Settu slóð að myndbandinu í reitinn Video URL.
    Það er hægt að birta myndbönd frá Youtube og Vimeo.
  3. Smelltu á Vista.

Drupal sækir nafn myndbandsins eins og það er á myndbandaveitunni. Þegar búið er að vista í skrefi 3 hér fyrir ofan er myndbandið komið í margmiðlunarsafnið á vefnum.

Til að birta myndband á síðu er notuð efniseiningin Video Text.

ATH.: Í fyrsta skipti sem fólk opnar síðu sem inniheldur myndbönd birtist grár kassi fyrir myndbandinu, ásamt textanum Sýna efni frá Youtube (eða Display content from Youtube). Þetta er vegna persónuverndarmála, til að Youtube fari ekki að safna persónuupplýsingum um notendur um leið og komið er inn á síðuna.

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.