Hér gilda líka almennar reglur um framsetningu efnis og tengla á vefnum. Sjá leiðbeiningar um tengla á síðunni Skrifað fyrir vefinn.

Hver síða á vefnum á sitt eigið númer, eða node-númer. Það er mikilvægt að nota node-númerin þegar tengt er yfir á síður innan vefsins. Undantekning á þessu er þegar tengt er í starfsmannasíður. Sjá hér fyrir neðan: Tenglum bætt í texta – Tengill í síðu innan vefsins.

Node-númerið breytist aldrei. Það er n.k. kennitala hverrar síðu. Númerið sést í slóðinni þegar vinnsluhlutinn (edit-hlutinn) er opinn.

Síðan Rules - Code of Conduct á enska vefnum hefur t.d. node-númerið 4178.

Í textaritlinum velur þú textann sem þú vilt gera að tengli.

Smelltu svo á tenglahnappinn (Sjá um textaritilinn).

Þá opnast svona gluggi:

Í URL-reitinn setur þú slóðina sem þú vilt tengja í. Hér eru nokkrir möguleikar í boði:

Tengill í annan vef

Settu slóð síðunnar sem þú vilt tengja í.

Dæmi: https://ugla.hi.is/kennsluskra

Tengill í síðu innan vefsins

Skrifaðu nafn (fyrirsögn) síðunnar sem þú vilt tengja í. Þá kemur upp listi af síðum í boði, sem þrengist eftir því sem þú skrifar meira. Veldu síðuna úr listanum sem þú vilt tengja í.

Eða:

Settu inn slóðina í reitinn á forminu /node/[númer]

Dæmi: /node/4178

Sjá upplýsingar um node-númer fyrir ofan.

Undantekning frá þessu eru starfsmannasíður á vefnum. Þar á ekki að nota node-númerin, því þau geta breyst eða horfið. í staðinn á að nota slóðina /starfsfolk/ (/staff/ á enska vefnum) og notandanafn viðkomandi starfsmanns fyrir aftan. Dæmi:

  • Íslenska /starfsfolk/benedikt
  • Enska: /staff/benedikt

Tengill í netfang

Á undan netfanginu sem þú vilt tengja í kemur textinn mailto: – ekki með bili á milli.

Dæmi: mailto:hi@hi.is

Tengill í símanúmer

Til að gefa símanotendum möguleika á að smella á símanúmer til að hringja í kemur símanúmerið í reitinn með textanum tel: á undan – ekki með bili á milli.

Dæmi: tel:5254000

Tengill í PDF-skjal

Byrjaðu á að hlaða PDF-skjalinu upp á vefinn með einingunni File, eða finna það á vefnum. Sjá leiðbeiningar.

Opnaðu skjalið í nýjum glugga og afritaðu slóðina. Ef slóðin að skjalinu er https://hi.is/sites/default/files/2024-01/rules_of_procedure_on_the_course_catalogue.pdf er nóg að afrita slóðina frá og með hlutanum /sites.

Slóðin sem fer í teitinn er þá: /sites/default/files/2024-01/rules_of_procedure_on_the_course_catalogue.pdf

Í ýmsum efniseiningum er í boði að setja inn tengil eða hnapp (Button). Sem dæmi má nefna Tenglasafn (Link collection), Flýtileiðir (Shortcuts) og hnappa (buttons).

Í þessum einingum eru reitirnir:

  • URL – Ef þú vilt tengja yfir á síðu innan vefsins er nóg að skrifa nafn síðunnar. Þegar þú byrjar að skrifa færðu lista yfir síður sem innihalda stafarununa. (Autocomplete-möguleikinn)
    • Það er líka hægt að setja slóðina á forminu /node/[númer] í þennan reit. Sjá leiðbeiningar um node-númer hér fyrir ofan.
    • Ef þú vilt tengja á síðu utan vefsins setur þú slóð að viðkomandi síðu í reitinn.
  • Link text – Í þennan hluta kemur heitið á tenglinum.

Stundum viljum við búa til tengla sem vísa beint á ákveðna hluta síðunnar. Það einfaldar oft fyrir fólki og sparar leitina ef síðan er mjög efnismikil.

Það eru nokkrar aðferðir til þess:

Var efnið hjálplegt?
Já

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Deila