Töflur geta verið til vandræða á vefnum. Það eru ekki síst blindir og sjónskertir notendur sem eiga í erfiðleikum með þær, þar sem lesvélar sem þeir nota geta ekki lesið töflurnar rétt nema þær séu sérstaklega skilgreindar. Stundum henta þær heldur ekki á minni skjám, þ.e. á símum eða spjaldtölvum.
Töflurnar ætti því að nota sparlega, enda oft hægt að miðla upplýsingunum á annan hátt. En stundum eru þær nauðsynlegar og þá er þetta aðferðin til að búa þær til:
Í einingu fyrir venjulegan texta smellir þú á töfluhnappinn í textaritlinum:
Þá birtist stillingagluggi fyrir töfluna:
Í reitinn Raðir (Rows ef vefurinn er á ensku) skrifar þú fjölda lína sem eiga að vera í töflunni.
Í reitinn Dálkar (Columns) setur þú fjölda dálka. Það er hægt að bæta við eða fjarlægja línur og dálka eftir að taflan er tilbúin.
Í reitnum Fyrirsagnir (Header) velur þú hvaða raðir og/eða dálkar eiga að gegna hlutverki fyrirsagna. Fyrirsagnir í töflum eru mikilvægar til að skjálesarar fyrir blinda og sjónskerta notendur lesi töfluna rétt.
Í reitinn Titill (Caption) skrifar þú lýsandi heiti á töflunni.
Þú getur alltaf breytt stillingum á töflunni síðar, með því að hægrismella á hana með músinni og velja viðeigandi atriði sem þú vilt breyta.
Til að bæta röð við töfluna velur þú reit fyrir ofan eða neðan í töflunni og hægrismellir á hann. Í valmyndinni sem birtist velur þú Röð (eða Row) og því næst Skjóta inn röð fyrir ofan (Insert Row Before) eða neðan (After), eftir því hvar þú vilt að röðin birtist.
Það sama er hægt að gera til að bæta við dálkum. Þá velur þú Skjóta inn dálki vinstra megin (eða Insert Column Before) eða hægra megin (After).
Nokkur dæmi um töflur
| Ár | Fjöldi nemenda | Þar af nýnemar |
|---|---|---|
| 2023 | 14.167 | 3.323 |
| 2022 | 13.967 | 3.439 |
| 2021 | 15.258 | 3.922 |
| Ár | 2023 | 2022 | 2021 |
|---|---|---|---|
| Fjöldi nemenda | 14.167 | 13.967 | 15.258 |
| Þar af nýnemar | 3.323 | 3.439 | 3.922 |
| Ár | Fjöldi nemenda | Þar af nýnemar |
|---|---|---|
| 2023 | 14.167 | 3.323 |
| 2022 | 13.967 | 3.439 |
| 2021 | 15.258 | 3.922 |