Breyta síðu
Til að breyta síðu er einfaldast að vera á síðunni sem þú ætlar að breyta.
Aðferðirnar við að komast inn á vinnsluhluta (edit-hluta) síðunnar eru mismunandi eftir því hvort unnið er á aðalvefjum eða stofnana- og sérvefjum:
- Smelltu á Current page í vinnustikunni.
Eða
- Veldu Current page → Edit.
- Smelltu á Edit neðst á síðunni:
Það er líka hægt að smella á Content í vinnustikunni.
- Þar geturðu notað leitarvélina og/eða síuna til að finna síðuna sem þú ætlar að breyta.
- Smelltu á Edit-hnappinn við viðkomandi síðu:
Ef þú hefur vistað síðuna en vilt hætta við breytingarnar geturðu smellt á tengilinn Útgáfur (eða Revisions).
Á aðalvefjum er hann efst á síðunni, í breytingahlutanum (edit-hlutanum) á síðunni.
Á stofnana- og sérvefjum er hann neðst á síðunni, þegar þú ert skráð-/ur inn í Drupal.
Eftir að smellt er á tengilinn birtist breytingasaga síðunnar, með allt að 20 nýjustu útgáfur af síðunni:
Á listanum sjást:
- Dagsetning
- Notandanafn þess sem breytti síðunni
- Revert-hnappur.
Ef smellt er á dagsetninguna sést hvernig síðan leit út þann dag.
Til að fá eldri útgáfuna upp aftur smellirðu á Revert-hnappinn, í sömu línu og viðkomandi dagsetning.
Eftir að smellt er á hnappinn birtist staðfestingarsíða. Þar þarftu að staðfesta að þú viljir örugglega fá eldri útgáfuna aftur.