Ráðstefnusíður eru í boði á enska vef HÍ. Fyrir hverja ráðstefnu er ein síða með helstu upplýsingum. Til að eiga erindi á vef háskólans verður ráðstefnan að vera skipulögð af starfsfólki HÍ og/eða að vera haldin á háskólasvæðinu.
Síðurnar eru einkum ætlaðar minni ráðstefnum og ráðstefnum sem ekki eru haldnar reglulega á háskólasvæðinu eða skipulagðar af starfsfólki HÍ.
Ráðstefnusíður eru opnar í eitt og hálft til tvö ár eftir að ráðstefnunni lýkur.
Dæmi um ráðstefnusíður:
Ný ráðstefnusíða stofnuð
Til að stofna nýja ráðstefnusíðu er best að velja Content → Add content → From template.
Þar undir er sniðmát sem heitir Ráðstefna. Þar smellir þú á tengilinn Create content from this template (blaðatáknið).
Hausmynd
Efst á síðunni, í haushlutanum (header) er slæðusýning (slideshow). Þar er gert ráð fyrir mynd og stuttum texta um ráðstefnuna, í mesta lagi einni til tveimur setningum.
Grunnupplýsingar
Efst í efnishlutanum er einingin Tveir dálkar (Two columns). Til að þessi eining hegði sér rétt verður að standa Overview í reitnum Toggle title.
Hér eru fjórir reitir, ætlaðir fyrir grunnupplýsingar:
- Date: Upphafs- og lokadagsetning ráðstefnunnar.
- Language: Tungumál sem ráðstefnan er haldin á.
- Location: Staðsetning ráðstefnunnar.
- Contact: Tengiliður eða netfang sem hægt er að hafa samband við.
Inngangstexti
Á eftir grunnupplýsingunum er hægt að hafa inngangstexta eða almennar upplýsingar um ráðstefnuna, sett saman úr fyrirsögn og textaboxi.
Ítarupplýsingar
Að inngangstextanum loknum er hægt að hafa ítarlegri upplýsingar að eigin vali í harmónikkulistum. Algengt efni í þessum hluta er:
- Dagskrá ráðstefnunnar
- Verðskrá
- Tenglar í skráningar- og/eða greiðslugáttir.
- ATH. Það er ekki hægt að setja upp slíkar gáttir á vef HÍ. Þær verða að koma frá utanaðkomandi aðila.
- Kall eftir fyrirlestrum
- Upplýsingar um fyrirlesara
- Tenglar í bókunarsíður fyrir gistingu
Samstarfs- og styrktaraðilar
Til að birta lógó styrktar- og/eða samstarfsaðila má nota efnisbox (custom box). Með þessum boxum er líka hægt að útbúa tengla í aðrar síður.
Sjá leiðbeiningar um efnisbox → upplýsingabox með tengli og mynd.