Með efniseiningunni Links collection er hægt að búa til tenglasöfn.

Söfnin geta verið í allt að fjórum dálkum. Fjöldi þeirra er valinn í valmyndinni Útlit efst í stillingum á einingunni. Ef söfnin eru fleiri en fjöldi dálka skiptast þau á milli lína.

Í reitinn Titill kemur fyrirsögnin yfir dálkinum.

Slóðin að síðunni fer í reitinn Vefslóð.

Sjá nánar: Um tengla

Heiti tengilsins fer í reitinn Link text.

Til að bæta fleiri tenglum við safnið er smellt á hnappinn Bæta við öðru atriði og leikurinn endurtekinn.

Til að bæta öðrum dálki við safnið er smellt á hnappinn Bæta við Links.

Hægt er að færa tenglana til með því að færa þá upp og niður með músinni (Drag-n-drop-möguleikinn).

Til að eyða tenglum úr listanum er smellt á hnappinn Fjarlægja, hægra megin við tengilinn.

ATH: Það er ekki gott að hafa of marga tengla í þessu tenglasafni. Þeir ættu ekki að vera fleiri en fimm til sjö í hverjum dálki. Ef þeir eru fleiri hætta þeir að virka sem flýtileiðir og fara frekar að rugla lesendur vefsins.

Dæmi um tenglasafn

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Deila