Flýtileiðir á stofnana- og sérvefjum

Einingin Shortcuts er notuð til að búa til flýtileiðir. Þetta geta verið tenglar í síður sem eru mikið skoðaðar eða síður sem við viljum vekja sérstaka athygli á.

Tenglarnir birtast í láréttri röð. Ekki er mælt með því að hafa flýtileiðirnar of margar (því annars eru það ekki flýtileiðir)! Í mesta lagi ætti að hafa sex til sjö tengla á svona lista.

Í reitinn vefslóð skrifar þú heiti síðunnar eða slóð að henni. Sjá nánar: Um tengla.

Í reitinn Link text kemur heiti tengilsins.

Til að bæta öðrum tengli við listann smellir þú á hnappinn Bæta við öðru atriði og endurtekur leikinn.

Til að fjarlægja flýtileið er textanum eytt út úr reitunum.

Dæmi um flýtileiðir

Var efnið hjálplegt?

Gott að heyra.

Láttu vita hver þú ert
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.
Nei

Æ, leitt að heyra.

Hvað er að?
Skrifaðu eins góða lýsingu á vandamálinu og þú getur.
Láttu vita hver þú ert.
Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni.